Laganefnd LMFÍ leggst gegn því að í embætti sýslumanns sé einstaklingur sem ekki er með fullnaðarpróf í lögfræði.

Laganefnd Lögmannafélags Íslands hefur farið yfir frumvarp til nýrra laga um sýslumann sem leysi af hólmi lög nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, nr. 50/2014. Með frumvarpinu er m.a. lagt til að landið verði eitt  sýslumannsumdæmi og undir stjórn eins embættismanns.

Laganefnd bendir á að embætti sýslumanns snúist að verulegu leyti um lögfræðileg málefni og telur að verkefni sýslumanns séu sennilega þau sem teljast mest lögfræðilegs eðlis af verkefnum á málefnasviði embætta ríkisins að dómstólum frátöldum.

Meðal annars segir í umsögninni að veigamikill þáttur í starfsemi sýslumanns séu flókin lögfræðileg verkefni sem varða mjög mikilvæga hagsmuni einstaklinga og lögaðila: „Þótt sýslumaður hafi í þjónustu sinni löglærðra fulltrúa, sem taka ákvarðanir í hans nafni, verður að telja  nauðsynlegt að sýslumaður, sem æðsti embættismaðurinn, hafi til að bera þekkingu á sviðinu til að geta verið leiðandi, stutt við löglærða fulltrúa sína og tekið endanlegar ákvarðanir.“

Eyrún Ingadóttir