Fjöldi lögmanna með virk málflutningsréttindi 2016 til 2026.
Samsetning félagsmanna Lögmannafélags Íslands í ársbyrjun 2026
Síðasta áratug hefur félögum í LMFÍ fækkað um 5%. Alls 57% félagsmanna eru sjálfstætt starfandi lögmenn, 14% fulltrúar og innanhússlögmenn eru 26%. Annars eru litlar breytingar á félagatali milli ára en tölur í sviga eru frá fyrra ári.
Nú í ársbyrjun 2026 voru 1029 með virk málflutningsréttindi en félagsmönnum hefur fækkað um fjóra frá sama tíma á síðasta ári.
- Alls eru 580 sjálfstætt starfandi, eða 56% félagsmanna (57%).
- Fulltrúar sjálfstætt starfandi lögmanna eru 144, sem svarar til 14% félagsmanna (14%).
- Innanhússlögmenn hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum eru 229 talsins eða 26% (25%).
- Fjöldi félagsmanna sem ekki stundar lögmannsstörf sökum aldurs eða veikinda er 40 eða 4%, sem er óbreytt hlutfall frá sama tíma árið 2025.
Hlutfallsleg skipting félaga eftir starfsvettvangi í ársbyrjun 2026.
Konur í lögmannastétt
Alls eru 329 konur af 1029 félögum í LMFÍ, eða 32% félaga (32%).
- 44% (42%) eru sjálfstætt starfandi,
- 17% (20%) eru fulltrúar.
- 37% (36%) eru innanhússlögmenn.
- 2% (2%) eru hættar störfum vegna aldurs eða veikinda.
Hlutfall kvenna eftir starfsvettvangi í ársbyrjun 2026.
Karlar í lögmannastétt
Alls eru 700 karlar af 1029 félögum í LMFÍ, eða 68% félaga (68%).
- 62% (63%) eru sjálfstætt starfandi.
- 13% (12%) eru fulltrúar.
- 20% (21%) eru innanhússlögmenn
- 5% (4%) eru hættir störfum sökum aldurs eða veikinda.
Hlutfall karla eftir starfsvettvangi í ársbyrjun 2026.