Lögmannafélag Íslands hefur sent Landsrétti erindi þar sem óskað er eftir skýringum og fundi með forseta réttarins vegna nýlegra ákvarðana um þóknun skipaðra verjenda og talsmanna. Félaginu hafa borist ábendingar frá fjölmörgum lögmönnum sem telja að þóknunarákvarðanir uppfylli ekki þau viðmið sem leiða af lögum og reglum um hæfilega þóknun fyrir skyldustörf lögmanna.
Í erindinu er bent á að réttur sakborninga og annarra aðila til aðstoðar skipaðs verjanda, talsmanns eða réttargæslumanns sé órjúfanlegur hluti af réttlátri málsmeðferð samkvæmt Stjórnarskrá Íslands og Mannréttindasáttmála Evrópu. Á móti hvíli sú skylda á lögmönnum að taka við slíkum skipunum – og á sama tíma eigi þeir skýran rétt á sanngjarnri þóknun fyrir störfin. Félagið lýsir áhyggjum af því að úrskurðir og dómar Landsréttar hafi vikið frá þeim viðmiðum sem almennt er byggt á, án þess að fram komi fullnægjandi rökstuðningur fyrir slíkum frávikum. Slíkt sé til þess fallið að grafa undan fyrirsjáanleika og samræmi í ákvörðunum um þóknun skipaðra verjenda og talsmanna.