Um miðjan mars síðastliðinn var málflutningskeppni ESA haldin í tíunda sinn. Að þessu sinni var keppnin haldin á Íslandi og fengu liðin 20, sem tóku þátt, að flytja mál í Héraðsdómi Reykjavíkur og Hæstarétti.

Málflutningskeppnin er skipulögð af Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sem hluti af fræðslu- og kynningarstarfi stofnunarinnar með það að markmiði að auka þekkingu og skilning á EES-rétti meðal nemenda á Evrópska efnahagssvæðinu. Keppnin er jafnframt vettvangur fyrir alþjóðlegt samstarf og tengslamyndun.

Með þátttöku í keppninni fá nemendur þjálfun í málflutningi, endurgjöf frá sérfræðingum í lögfræði og hagnýta reynslu af EES-rétti. Að þessu sinni tóku 18 lið frá Noregi þátt auk tveggja íslenskra liða frá Háskólanum í Reykjavík.

Sigurliðið, sem er á forsíðumynd, kom frá Háskólanum í Bergen og var skipað þeim (f.v.) Håvar Espe, Olav Flatøy Hegdahl, Felix Håkonsen Nessøe, Ida Rygg Olsen og Christian Aleksander Espeseth.  Liðið fær í verðlaun fræðsluferð til Brussel og Lúxemborgar þar sem meðal annars ESA, stofnanir Evrópusambandsins, EFTA-dómstóllinn og dómstóll Evrópusambandsins eru heimsótt.

Eyrún Ingadóttir

Til landsins komu meðal annars fulltrúar frá framkvæmdastjórn ESB til að dæma í keppninni auk íslenskra sérfræðinga í EES-rétti. Dómarar í lokakeppninni ásamt ritara, voru f.v.  Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, Hildur Hjörvar, lögmaður hjá ESA, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri laga- og framkvæmdasviðs hjá ESA, Fernando Castillo de la Torre, yfirlögfræðingur samkeppnis- og samrunamála hjá lögfræðiþjónustu framkvæmdarstjórnar ESB, Dóra Sif Tynes, lögmaður og eigandi á ADVEL, Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins, Árni Páll Árnason, varaforseti ESA, Helga Melkorka Óttarsdóttir,lögmaður og eigandi á LOGOS, Margrét Einarsdóttir, prófessor og stjórnarformaður Samkeppniseftirlitsins og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.