Föstudaginn 12. desember voru afhentir styrkir Námssjóðs LMFÍ fyrir árið 2025.
Að þessu sinni fengu tvö verkefni styrk. Annars vegar fengu Karl Axelsson, Víðir Smári Petersen og Þorgeir Örlygsson kr. 1.200.000,- fyrir Eignarétt IV og hins vegar fengu Eyþóra Kristín Geirsdóttir og Margrét Gunnarsdóttir fyrir fræðirit um Opinber innkaup kr. 600.000,-
Skilyrði fyrir styrkjum Námssjóðs er að höfundar kenni á námskeiðum fyrir Lögmannafélagið svo félagsmenn geta búist við því að á næstu misserum verði kennd átta ný námskeið í Eignarétti og þrjú námskeið í Opinberum innkaupum.
Alls hafa kr. 6.700.000,- verið veittar í styrki til alls níu fræðirita síðan árið 2020 en þá var styrkt útgáfa Eignaréttar II. Síðan þá hafa tugir námskeiða verið í boði á grundvelli samningsins.
Lögmannafélag Íslands óskar styrkhöfum til hamingju og sömuleiðis velfarnaðar við fræðiskrifin.