Fyrr í þessum mánuði sendi stjórn Lögmannafélags Íslands erindi til forseta Landsréttar vegna vaxandi óánægju lögmanna með viðmiðunarreglur réttarins um fjarverutilkynningar málflytjenda og röðun mála á dagskrá sem Landsréttur setti á síðasta ári.

Í erindi Lögmannafélagsins er m.a. vísað til þeirra sjónarmiða sem komið var á framfæri í bréfi félagsins frá 24. júní sl. (Sjá hér) og kynnt voru á samráðsfundi með fulltrúum réttarins í aðdraganda reglusetningarinnar. Þar var m.a. bent á mikilvægi þess að dagskrá Landsréttar yrði birt fyrir lengri tímabil í senn, enda mætti með því mæta að umtalsverðu leyti því óhagræði sem málflytjendur hafa af hinum nýju reglum.

Þrátt fyrir framangreindar athugasemdir hefur lítið áunnist í dagskrármálum Landsréttar. Að mati félagsins er brýnt að rétturinn bregðist við með aukinni áherslu á fyrirsjáanleika í dagskrá með það fyrir augum að koma til móts við skert svigrúm lögmanna til að skipuleggja fjarvistir af sinni hálfu.

Þannig yrði til dæmis strax til bóta ef unnt væri að upplýsa með góðum fyrirvara hvenær gert væri ráð fyrir að málflutningur hæfist að hausti og lyki að vori, auk hvenær málflutningur lægi niðri vegna jóla- og páskaleyfa. Með þessu gæfist lögmönnum betra ráðrúm til að skipuleggja eigin leyfi.

Þá telur Lögmannafélagið nauðsynlegt að fjölga „fjarvistardögum“ upp í 10 til 15 á hvoru misseri enda ætti slíkt ekki að koma með teljandi hætti niður á skipulagningu dagskrár en myndi strax veita lögmönnum meira svigrúm.

Lögmannafélagið hefur óskað eftir fundi með fulltrúum Landsréttar eins fljótt og kostur er til ræða þessi mál.

Sjá frétt um athugasemdir LMFÍ við reglur Landsréttar 26. júní 2025