Íslenska sendinefndin glaðbeitt í ráðstefnulok. Frá vinstri: Ólafur Ágúst Ingason (EFLA), Gunnar Atli Gunnarsson (Landslög), Víðir Smári Petersen (HÍ), Sigurður Ágústsson (LEX), Hildur Ýr Viðarsdóttir (Landslög), Fjölnir Ólafsson (LEX), Sindri Guðmundsson (EFLA) og Jóhannes Karl Sveinsson (Landslög).

Dagana 30.-31 janúar sl. sótti hópur Íslendinga ráðstefnu á sviði verktakaréttar í Lundi í Svíþjóð. Ráðstefnan var hugsuð sem eins konar upphaf frekari samvinnu milli Norðurlandanna á þessu sviði en hún hafði legið niðri síðustu áratugi. Þema ráðstefnunnar í ár var „Regulating Disruptions in Nordic Construction Contracts“.

Í stuttu máli má segja að viðfangsefni ráð-stefnunnar hafi hverfst um allar truflanir sem koma upp á verktíma, m.a. vegna verðhækkana eða annarra ófyrirséðra atvika. Þannig var á ráðstefnunni velt m.a. upp spurningum um með hvaða hætti væri fjallað um truflanir af þessum toga í stöðlum einstakra landa og hvaða lærdóm mætti draga af mismunandi nálgun á slíka reglusetningu. Jafnframt var sérstaklega vikið að álitaefnum um úrlausn ágreiningsefna milli verkkaupa og verktaka um ófyrirséð jarðvegsskilyrði (e. ground conditions). Enn fremur var fjallað um þýðingu samstarfsskyldunnar í þessu tilliti.

Megintilgangur ráðstefnunnar var að tengja saman annars vegar fræðasamfélagið og hins vegar beina þátttakendur í verktakarétti, svo sem lögmenn og fulltrúa fyrirtækja í mannvirkjagerð, frá öllum Norðurlöndunum. Slík tenging væri þannig til þess fallin að auðga og þróa frekar verktakarétt innan hvers lands. Samsetning íslensku sendinefndarinnar endurspeglaði þessa áherslu þar sem alls átta sérfræðingar á sviði verktakaréttar tóku þátt, bæði úr hópi lögmanna og fræðimanna, sem og tveir starfsmenn verkfræðistofunnar EFLU. Fulltrúar íslensku sendinefndarinnar létu ekki sitt eftir liggja í dagskrá ráðstefnunnar. Þannig gerði Fjölnir Ólafsson, lögmaður á LEX lögmannsstofu, grein fyrir því hvernig truflanir sem koma upp á verktíma eru reglusettar í íslenska staðlinum ÍST 30. Víðir Smári Petersen, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands, var með erindi um norræna samanburðarrannsókn á verðhækkunum vegna ófyrirséðra atvika sem hann hefur unnið að ásamt norrænum kollegum sínum. Þá var Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður á Landslögum lögfræðistofu, með erindi um áhættu af ófyrirséðum jarðvegsskilyrðum samkvæmt ÍST 30 og réttarframkvæmd hér á landi. Loks tóku Jóhannes Karl og Víðir Smári jafnframt þátt í pallborðsumræðum.

Samandregið er ljóst að þótt norrænu staðlarnir á sviði verktakaréttar séu á margan hátt afar ólíkir var ráðstefnan skýr vitnisburður þess að þau vandamál sem koma upp á sviði verktakaréttar eru í grunninn hin sömu á öllum Norðurlöndunum og því tvímælalaust gagnlegt fyrir íslenska sérfræðinga á þessu réttarsviði að bera saman bækur við norræna kollega.

Næsta ráðstefna er fyrirhuguð árið 2027. 

Texti: Gunnar Atli Gunnarsson, lögmaður hjá Landslögum