Stjórn dómstólasýslunnar hefur samþykkt nýjar leiðbeinandi reglur um hámarks-lengd stefnu og greinargerða í einkamálum o.fl. nr. 5/2025.

Markmiðið með setningu reglnanna er að stuðla að því að stefnur og greinargerðir í dómsmálum á öllum dómstigum séu hnit-miðaðar, gagnorðar og skýrar en ekki of langar og auka þannig skilvirkni við meðferð dómsmála.

Reglurnar mæla fyrir um að lýsing máls-atvika, málsástæðna og lagaraka í stefnu til héraðsdóms skuli ekki vera lengri en sakarefni og umfang máls gefa tilefni til. Lýsingin skuli vera hnitmiðuð og gagnorð og að jafnaði ekki lengri en 3.500 orð (þ.e. um 8 blaðsíður). Sama hámarkslengd á við um greinargerð fyrir héraðsdómi en umfjöllun um formhlið máls samhliða efnisvörnum getur þó réttlætt lengri greinargerð. Í sérstaklega flóknum eða umfangsmiklum málum getur lýsing máls-atvika, málsástæðna og lagaraka í stefnu og greinargerð fyrir héraðsdómi verið allt að 7.500 orð (þ.e. um 18 blaðsíður) eða í algjörum undantekningatilvikum allt að 10.000 orð (þ.e. um 24 blaðsíður). Sömu viðmið eiga við um greinargerðir aðila fyrir Landsrétti og Hæstarétti.

Reglurnar mæla jafnframt fyrir um að greina skuli eins skýrlega og kostur er á milli málsatvikalýsingar annars vegar og málsástæðna hins vegar, t.d. með kafla-skiptingu á milli þeirra. Þegar mörgum málsástæðum er teflt fram til stuðnings málatilbúnaði aðila skuli aðgreina þær með skýrum hætti, t.d. með því að tölusetja máls-ástæðurnar.

Reglurnar öðluðust gildi 1. maí sl. og eru í heild á heimasíðu dómstólasýslunnar, www.domstolar.is.  

Dómssýslan