Ég er lögmaður og eigandi hjá LOCAL lögmönnum þar sem ég sinni fjölbreyttum verkefnum á borð við fyrirtækja- og fasteignamál, samningagerð, erfðamál, skattamál og útlendingamál auk fjölmargra annarra tilfallandi áskorana sem lögmannsstarfið færir manni. Starf lögmanns er í raun eins og „buffet“,maður veit aldrei alveg hvað verður á diskinum næst. Sum verkefni eru einföld og stutt, önnur eru flókin og krefjandi og taka stundum daga, vikur, mánuði eða jafnvel ár.

Mér þykir afar mikilvægt að rækta fjölskyldutímann og áhugamálin samhliða annasömu starfi. Við hjónin eigum þrjú svo til uppkomin börn á aldrinum 15–24 ára sem öll búa heima, og þótt uppeldisskyldum sé létt af herðum okkar er samveran engu að síður stór hluti af okkar daglega lífi. Við leggjum áherslu á að borða kvöldmat saman þegar þess gefst kostur. Engin vika er eins en hér er innsýn í eina þeirra.

Mánudagur

Ég mætti í vinnuna rétt fyrir klukkan 9.00 og byrjaði daginn á að ná mér í einn ískaldan engifer–lime Collab, sem er orðin ómissandi morgunvenja. Síðan settist ég niður með mínu góða samstarfsfólki og við fórum aðeins yfir helgina. Þótt ég stefni gjarnan á rólegheit um helgar verður það sjaldan að veruleika og því er ég stundum aðeins lúin á mánudagsmorgnum en það lagast fljótt.

Dagurinn hófst á tölvupóstum sem bárust yfir helgina og yfirferð á samningi um sölu á rekstri félags ásamt ráðningarsamningi. Klukkan 11.00 átti ég fund með hjónum um erfðamál en slík mál eru töluvert algeng á okkar borðum. Eftir fundinn greip ég fljótlegan hádegisbita og hélt áfram með verkefnin.

Ég kom heim úr vinnunni rétt fyrir klukkan 18.00 og við hjónin útbjuggum fljótlegan kvöldmat með því að nýta afganginn frá sunnudagsmatnum. Á mánudagskvöldum spila ég badminton í TBR með skemmtilegum og kappsfullum hópi. Ég mætti klukkan 19.40 með spaðann kláran, en gengið var ekki upp á sitt besta því ég tapaði öllum leikjunum. Það var þó frábær æfing í þrautseigju. Við enduðum síðan á Ölveri og fengum okkur einn kaldan. Það er ekki hefð á hverjum mánudegi en ljúft þegar svo ber undir.

Heima horfðum við hjónin á einn þátt af Succession og ég greip í prjónaskapinn sem er nýlegt og einstaklega notalegt áhugamál. Ég er að prjóna peysu á yngri dóttur mína og nýt þess að ljúka deginum með prjóna í höndunum þegar þess er kostur.

Þriðjudagur

Ég fór á fætur klukkan 6.30 og mætti á Rótarýfund klukkan 7.30 hjá Rótarýklúbbi Reykjavík–Landvættum, sem fundar á Geira Smart við Hverfisgötu. Erindi dagsins flutti Kristján Kristjánsson lýsingarhönnuður. Ég hef verið Rótarýfélagi frá 2018 og mæli heils hugar með þessum góðgerðar- og tengslanetssamtökum. Helsti kosturinn er að kynnast fjölbreyttu og áhugaverðu fólki, byggja upp tengsl og taka þátt í samfélagsverkefnum sem hafa raunveruleg áhrif.

Ég mætti til vinnu um klukkan 9.00 og tók stuttan fund með sameigendum mínum þar sem við fórum yfir verkefnastöðu vikunnar. Þá sinnti ég tölvupóstum áður en ég hófst handa við að útbúa skiptayfirlýsingu vegna fasteignar og erfðafjárskýrslu um fyrirfram greiddan arf. Ég útbjó einnig verðtilboð til erlends fyrirtækis sem óskaði eftir aðstoð við umsóknarferli um dvalar- og atvinnuleyfi fyrir erlenda sérfræðinga.

Eftir hádegi mætti ég í fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna kröfu um opinber skipti. Að henni lokinni fór ég aftur á skrifstofuna og vann að drögum að erfðaskrá og kaupmála.

Klukkan 16.00 var ég mætt í Sporthúsið til einkaþjálfara. Aðra daga æfi ég í World Class og reyni að ná því markmiði að lyfta lóðum þrisvar í viku. Áður fyrr stundaði ég nær eingöngu þolþjálfun en á síðustu árum hef ég lagt meiri áherslu á styrktarþjálfun og hún reynist mér góð viðbót.

Á heimleiðinni kom ég við í Fylgifiskum á Nýbýlavegi og keypti tilbúinn fiskrétt í ofninn. Heima hélt ég áfram að vinna um stund en kvöldinu lauk í skipulagi fyrir gönguferð næsta sumars með gönguhópnum RÁP.

Miðvikudagur

Veðrið var frábært, bjart og þurrt, svo ég ákvað að hjóla til vinnu á rafmagnshjólinu mínu sem ég keypti fyrir rúmum tveimur árum. Það hefur reynst mjög góð fjárfesting. Leiðin frá gamla Vesturbænum í Hús verslunarinnar í Kringlunni er stutt og þægileg og mér finnst hressandi að byrja daginn á hjóli með morgunútvarp, tónlist eða hlaðvarp í eyrunum.

Fyrri hluti dags fór í fundi með viðskiptavinum. Þá vann ég að greinargerð fyrir skjólstæðing minn sem leggja þarf fram í dómi.

Ég hef í nokkur ár stundað frönskunám við Háskóla Íslands meðfram vinnu og verið skráð í eitt fag á önn. Nú tek ég áfangann Sérverkefni í þýðingum og tók stuttan Teamsfund í hádeginu með kennara mínum til að fara yfir verkefnið og næstu skref.

Í framhaldinu vann ég að greinargerð fyrir skjólstæðing vegna umsóknar hans um ótímabundið dvalarleyfi og skrifaði minnisblað um tollkrít og virðisaukaskatt.

Ég var komin heim um klukkan 17.30, skellti mér í hlaupagallann og hljóp nokkra hringi í kringum Tjörnina.

Eftir kvöldmat vann ég aðeins lengur og lauk deginum með Netflixþætti og las nokkra kafla í afar áhugaverðri bók sem vinkona mín var að gefa út.

Fimmtudagur

Ég mætti klukkan 8.30 til vinnu og fór fyrst í Bakarameistarann í Suðurveri til að kaupa möndluköku handa samstarfsfólkinu. Mér þykir afar vænt um vinnustaðamenninguna okkar og kakan vakti mikla kátínu.

Ég fór yfir kaupsamning vegna fasteignar fyrir erlenda viðskiptavini og var í sam-skiptum við fasteignasölu og ráðuneytið vegna undanþáguheimilda erlendra aðila til fasteignakaupa hér á landi.

Ég vann að minnisblaði fyrir erlendan aðila um mismunandi tegundir félagsforma, skattlagningu þeirra og rétt EES-ríkisborgara til dvalar á Íslandi.

Eftir vinnu fórum við hjónin á góð-gerðardaginn Gott mál í Hagaskóla þar sem sonur okkar stundar nám. Þar var hægt að kaupa alls kyns góðgæti og við enduðum á að borða kvöldmat í skólanum. Síðar um kvöldið fórum við í sund og prófuðum vel þekkta og áreiðanlega uppskrift: Heitasti potturinn, gufan og kaldi potturinn í Vesturbæjarlauginni.

Föstudagur

Klukkan 9.00 mætti ég í vinnu. Ég byrjaði á að hitta fólk sem kom til að skrifa undir afsal vegna kaupa á fasteign. Því næst vann ég í kæru til dómsmálaráðuneytisins á ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn um íslenskan ríkisborgararétt. Þá vann ég að beiðni um kyrrsetningu til sýslumanns.

Þar sem við höfðum lítið komist yfir sameiginlegan hádegisverð í vikunni á skrif-stofunni pöntuðum við pizzur frá Flatey og áttum góða stund saman yfir spjalli.

Síðdegis fórum við hjónin í útgáfuhóf hjá vinkonu okkar sem var að gefa út bók í annað sinn. Stemningin var frábær og eftir á héldum við á Forréttabarinn, hverfisstaðinn okkar, þar sem við nutum góðra rétta og vínglasa.

Laugardagur

Eftir kaffibolla og morgunspjall dreif ég mig út og hljóp 10 km í góðu veðri og tók svo nokkrar ketilbjölluæfingar til að sinna styrktarþætt-inum líka. Seinna um daginn gengum við hjónin í miðbæinn, fórum á kaffihús og kíktum í Mál og menningu þar sem karlakórinn Esja hélt opna tónleika.

Um kvöldið borðuðum við með börnunum og horfðum á Netflix.  Við erum einmitt að ljúka við að horfa á Succession.

Sunnudagur

Dagurinn hófst á Gróttuhringsgöngu með nokkrum góðum vinkonum í einstaklega fallegu veðri. Að henni lokinni settumst við á Kaffi Vest, fengum gómsætan hádegisverð, spjölluðum og prjónuðum saman. Stór hluti dagsins fór síðan í frönskuverkefnið mitt, en skilafrestur þess rennur út í byrjun desember.

Um kvöldið elduðum við boeuf bourguignon sem hafði mallað í nokkrar klukkustundir og nýtur mikilla vinsælda hjá öllum fjölskyldu-meðlimum. Við enduðum kvöldið á að horfa á kvikmynd og prjónarnir komu að sjálfsögðu með í sófann.

Að lokum

Vikan er til marks um hversu fjölbreytt og lifandi starf lögmanns getur verið. Verkefnin eru ólík, og áskoranirnar breytast frá degi til dags. Það sem hvetur mig áfram er að geta leyst raunveruleg mál sem skipta skjólstæðinga mína máli, vera í samstarfi við gott fólk og samhliða að ná því að rækta fjölskyldu, vináttu, nám og áhugamál. Í því felst fyrir mér kjarninn í góðu jafnvægi lífsins.