Í byrjun október 2026 lauk níunda matsmannanámskeiðinu sem Lögmannafélag Íslands hefur staðið fyrir ásamt dómstólasýslunni frá árinu 2018. Á þessum tíma hafa rétt um 400 sérfræðingar úr íslensku samfélagi sótt námskeiðið en af þeim eru nú tæplega 300 á lista yfir matsmenn sem deilt er eingöngu meðal lögmanna og dómstóla.
Listi yfir sérfræðinga
Tilgangur LMFÍ og dómstólasýslunnar með námskeiðinu var að útbúa lista yfir sérfræðinga sem hefðu fengið leiðbeiningar um þær kröfur sem gerðar eru til matsmanna. Of algengt var að matsmál ónýttust vegna vanþekkingar matsmanna á þeim lögum og reglum sem um þá giltu með tilheyrandi kostnaði fyrir dómskerfið. Þá voru til listar hjá sumum dómstólum landsins þar sem ekki voru uppfærðar upplýsingar um sérfræðinga sem gat verið bagalegt.
Síðan listi LMFÍ og dómstólasýslunnar var útbúinn hefur hann verið uppfærður árlega og sendur að því loknu til lögmanna og dómstóla.
Matsbókin
Viðar Lúðvíksson lögmaður var fenginn til að útbúa „Matsbók, leiðbeiningar fyrir dómkvadda matsmenn“ en fyrstu árin kenndi hann námskeðið ásamt Ragnari Ómarssyni tæknifræðingi og þáverandi formanni Matsmannafélags Íslands. Síðustu ár hefur Viðar séð einn um kennsluna.
Leiðbeiningarnar hafa orðið að hálfgerðri Biblíu fyrir dómkvadda matsmenn en þær hafa að geyma kafla um þýðingu matsgerða, hlutverk matsmanns og feril matsmáls allt frá því að ákveðið er að afla matsgerðrar og þar til hún er staðfest fyrir dómi. Þá er sérstakur kafli um áhugaverða dóma sem varða matsstörf og matsmenn sem aðstoðarmenn dómara hjá Héraðsdómi Reykjavíkur sáu um að reifa. Matsbókina er hægt að nálgast á sanngjörnu verði á skrifstofu Lögmannafélags Íslands.
Námskeiðið
Sem fyrr var matsmannanámskeiðið vel sótt en það tekur alls sex klukkustundir með heimsókn í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem dómari tekur á móti hópnum.
Heimsóknin er fyrst og fremst hugsuð fyrir þau sem hafa ekki komið í dómsal áður en síðustu þrjú árin hefur Arnaldur Hjartarson héraðsdómari tekið á móti hópnum.
Mikil ánægja hefur verið með matsmannanámskeiðið meðal þátttakenda og gildir einu hvort þeir hafi reynslu af matsstörfum eða eru að stíga sín fyrstu skref.
Námskeiðið var haldið í sal Garðyrkjufélags Íslands en þátttakendum bauðst einnig að sækja það í fjarfundi. Alls sóttu 55 manns námskeiðið að þessu sinni. Hér sést Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum í pontu en hann er jafnframt höfundur Matsbókarinnar sem er orðin að Bíblíu þeirra sem vinna að dómkvöddum matsmálum.
Síðustu ár hefur Arnaldur Hjartarson tekið á móti hópnum og átt við þau áhugavert spjall um störf matsmanna og hlutverk dómara.
Höfundur: Eyrún Ingadóttir