Hið árlega meistaramót LMFÍ var haldið á Hlíðavelli í Mosfellsbæ föstudaginn 4. september síðastliðinn. Mótið fór fram í blíðskaparveðri og það voru ánægðir og útiteknir keppendur sem komu að leik loknum inn í klúbbhúsið þar sem beið þeirra dýrindis súpa og tugir kílóa af vinningum.
Punktakeppni
1. sæti: Ragnar Björgvinsson með 41 punkt. Hann var krýndur golfmeistari LMFÍ árið 2026.
2. sæti: Geir Gestsson með 39 punkta.
3. sæti: Sigurður Orri Hafþórsson með 38 punkta.
Höggleikur
1. sæti: Ragnar Björgvinsson með 77 högg.
2. sæti: Sigurður Orri Hafþórsson með 80 högg.
3. sæti: Húnbogi Andersen 82 högg.
Nándarverðlaun
Næstur holu á 7. braut var Sigurður Orri Hafþórsson, 3,94 m.
Næstur holu á 18. braut var Ágúst Bragi Björnsson, 2,36 m.
Styrktaraðilar mótsins að þessu sinni voru Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Golfverslunin Örnin, Motus og Minigarðurinn.
Geir Gestsson bókstaflega lýsti upp klúbbhús Mosfellsbæjar þegar hann tók við verðlaunum fyrir annað sætið í punktakeppninni.
Stefán Þór Eyjólfsson formaður golfnefndar LMFÍ afhenti verðlaun af röggsemi sem hefði sómt sér í hvaða réttarsal landsins.
Sigurður Orri Hafþórsson raðaði inn vinningunum.
Stefán Þór Eyjólfsson, formaður gólfnefndar 2026