Ingimar Ingason framkvæmdstjóri LMFÍ og Þór Bjarkar eigandi Bjarkar ehf., undirrita kaup á Álftamýri 9.
Þann 8. september sl. undirritaði Ingimar Ingason framkvæmdastjóri Lögmannafélagsins samning um sölu á skrifstofuhúsnæði félagsins að Álftamýri 9, sem hefur staðið autt síðastliðið ár í kjölfar þess að þar fannst mygla.
Ákveðið var að selja húsnæði félagsins frekar en að fara í kostnaðarsamar endurbætur, m.a. þar sem húsnæðið þótti ekki lengur henta starfseminni eftir að rekstri bókasafns var hætt fyrir tveimur árum. Að sögn Ingimars voru það nágrannar félagsins sem keyptu húsnæðið. „Kaupendur er fyrirtækið Bjarkar ehf. sem á og rekur hótel að Álftamýri 7, en það hyggst fjölga gistirýmum,“ sagði hann og jafnframt að unnið væri að því að finna framtíðarhúsnæði undir starfsemi félagsins.
Þar með lýkur veru Lögmannafélags í Álftmýri 9 sem staðið hefur yfir í 45 ár. Skrifstofuhúsnæðið var keypt árið 1981 og var félagið með starfsemi á fyrstu hæð í upphafi en leigði út aðra hæðina. Fljótlega var kjallarinn innréttaður undir félagsstarfsemi og minni fundi. Um miðjan 10. áratuginn voru gerðar verulegar endurbætur á húsnæðinu og skrifstofan flutt á aðra hæð ásamt því að kennslusalur og stjórnarherbergi voru innréttuð á jarðhæð.
Frá 1965 hafði félagið átt skrifstofuhúsnæði að Óðinsgötu 4 og þar á undan haft afnot að húsnæði að Garðastræti 17. Fyrir þann tíma höfðu fundir verið haldnir í samkomusölum í bænum, á skrifstofum stjórnarmanna eða á heimili einhvers þeirra.
Eyrún Ingadóttir