EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í dag að 36. gr. EES-samningsins, skýrð með hliðsjón af réttinum til friðhelgi einkalífs, sem felur einnig í sér vernd samskipta lögmanna og umbjóðenda þeirra, girðir fyrir að lögmönnum sé skylt að veita skattyfirvöldum slíkar upplýsingar, ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn og meðalhóf krefja með tilliti til þess markmiðs að tryggja skilvirkt skatteftirlit, berjast gegn stórtækri skattahagræðingu eða koma í veg fyrir hættuna á skattasniðgöngu eða skattsvikum.

Ágreiningurinn í málinu sem er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur lýtur að beiðni Skattsins samkvæmt 4. mgr. 94. gr. tekjuskattslaganna að lögmannsstofa afhendi Skattinum skrá yfir alla umbjóðendur sína sem lögmannsstofan hefur veitt skattráðgjöf eða aðra þjónustu á árunum 2019 til 2024, varðandi umráð, beina eða óbeina eignaraðild umbjóðendanna að rekstri félaga, sjóða eða stofnana sem skráð eru erlendis eða eiga erlendar eignir.

Í forsendum dómsins segir meðal annars:

„Það leiðir af dómaframkvæmd MDE og Evrópudómstólsins að rétturinn til friðhelgi einkalífs verndar trúnað í öllum samskiptum einstaklinga og kveður á um aukna vernd samskipta lögmanna og umbjóðenda þeirra. Verndin nær ekki aðeins til málsvarnar heldur einnig til lögfræðiráðgjafar og nauðsynlegur hluti ráðgjafarinnar er að leynd ríki um hana, bæði hvað varðar innihald hennar og að hún hafi átt sér stað. Einstaklingar sem leita til lögmanns mega með réttu vænta þess að samskipti þeirra séu einkamál og að trúnaður ríki um þau. Það er því einungis í sérstökum undantekningartilvikum, að víkja má frá réttmætum væntingum þeirra um að lögmaður muni ekki, án þeirra samþykkis, upplýsa neinn um að þeir hafi leitað til hans eða hennar (samanber dóm frá 8. desember 2022 í máli Orde van Vlaamse Balies and Others, C-694/20, EU:C:2022:963, 27. mgr. og dómaframkvæmd sem þar er vísað til).

Hin sérstaka vernd sem þagnarskylda lögmanna felur í sér, sem fellur undir réttinn til friðhelgi einkalífs og leggur fyrst og fremst skyldur á lögmenn, er rökstudd með vísan til grundvallarhlut­verks lögmanna í lýðræðissamfélagi, nánar tiltekið að halda uppi vörnum fyrir aðila dómsmála. Það grundvallarhlutverk er háð því skilyrði sem viðurkennt er í öllum EES-ríkjum, annars vegar, að sérhver einstaklingur geti, án hindrana, haft samráð við lögmann, sem getur, eðli starfa síns vegna, veitt óháða lögfræðiráðgjöf til þeirra sem á þurfa að halda og, hins vegar, skyldu lög­mannsins til að vinna af heilindum í þágu umbjóðandans (samanber dóm í máli Orde van Vlaamse Balies and Others, C-694/20, sem vísað er til hér að framan, 28. mgr. og dómafram­kvæmd sem þar er vísað til).“

Lögmannafélag Íslands tekur undir þessar forsendur dómsins. Á fyrri stigum málsins hafði fél­agið sent Skattinum rökstutt erindi hvar vakin var meðal annars athygli á mikilvægi þess að virða grundvallarhlutverk lögmanna í lýðræðissamfélagi. Lögmannafélagið væntir þess að dómur EFTA-dómstólsins brýni fyrir stjórnvöldum, jafnt skattyfirvöldum sem öðrum, mikilvægi þessa.

Dóminn í heild sinni er að finna á vefslóð EFTA-dómstólsins https://eftacourt.int/cases/e-28 25/