Á árinu 2025 voru 1124 bú tekin til gjaldþrotaskipta hjá héraðsdómstólum landsins og önnuðust 323 lögmenn skipti á þeim. Þetta er um 13% fjölgun frá árinu 2024 þar sem fjöldi búa var 995 en alls sáu 287 lögmenn um skiptastjórn það ár. Lögmannablaðið rýndi í hvaða skiptastjórar önnuðust búskipti árið 2025.
Í ársbyrjun 2024 setti dómstólasýslan leiðbeinandi reglur um fjárhæð skiptatrygginga og skipun skiptastjóra og umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum nr. 5/2024. Jafnframt var byrjað að halda skrá yfir skiptastjóra þrotabúa sem gerir dómstólum kleift að halda faglegar utan um þrotabúin og auka gagnsæi sem er fagnaðarefni.
Alls var 491 (446) lögmaður á skrá dómstólanna yfir skiptastjóra árið 2025 en 323 (287) lögmönnum, eða 66% (65%) þeirra, var falið að skipta þeim 1124 (994) búum sem komu til skipta á árinu. Tölur í sviga eru frá 2024.
Úthlutun þrotabúa hjá héraðsdómstólum
Alls 175 (133) lögmönnum var úthlutað fjórum búum frá einum eða fleiri dómstól árið 2025. Samkvæmt reglum dómstólasýslunnar er ætlast til að hafi einn héraðsdómstóll ekki úthlutað fjórum búum til sama skiptastjóra þá eigi næsti dómstóll að fylla upp í kvótann. Þetta gera flestir dómstólar landsins en tveir skera sig þó úr. Annar er Héraðsdómur Norðurlands vestra en af þeim 11þrotabúum sem komu þar til skipta árið 2025 var öllum úthlutað til þriggja lögmanna á svæðinu. Hinn er Héraðsdómur Vesturlands en þar komu 36 bú til skipta og var tveimur lögmönnum á svæði dómstólsins úthlutað 10 og 11 þrotabúum sem er langt umfram þann fjölda sem reglur kveða á um. Þeir sex skiptastjórar sem voru skipaðir að auki hjá Héraðsdómi Vesturlands voru allt karlar en það sama gerðist árið 2024. Engar konur hafa verið skipaðar skiptastjórar þar í tvö ár.
Við skipun skiptastjóra er dómstólum ætlað að gæta jafnræðis milli kynja en á lista dómstólasýslunnar er 141 kona af 491 skiptastjóra eða rétt tæplega 29%. Konur voru skipaðar skiptastjórar í 28% búa á síðasta ári.Einhverjum kann að þykja litlu máli skipta þótt dómstólar landsbyggðar gæti ekki að kynjajafnrétti og horfi heim í hérað við úthlutun þrotabúa. En úthlutun þrotabúa á ekki að vera hluti af kunningjasamfélaginu heldur á hún að vera fagleg þar sem allir sérfræðingar sitja við sama borð svo lengi sem þeir standa undir þeirri ábyrgð sem þeim er falin. Ásýnd dómstólanna, og þar með réttarkerfisins alls, er undir. Lögmannablaðið sendi fyrirspurn til dómstólasýslunnar sem hefur vakið athygli viðkomandi dómstjóra á reglunum og óskað skýringa á þeim úthlutunum sem ekki eru í samræmi við þær.
Engar alvarlegar aðfinnslur
Skiptastjórar sem hafa annað hvort ekki tilkynnt skiptalok í fjórum eða fleiri búum, sem þau hafa verið skipuð skiptastjórar í, eða hafa haft eitt eða fleiri bú til skipta í tvö ár eða meira, fá ekki úthlutað búum fyrr en þau hafa lokið skiptum. Undanþága er þó veitt ef skiptastjórar gefa fullnægjandi skýringar sem þykja réttlæta drátt á skiptalokum. Enn hafa engar alvarlegar aðfinnslur verið gerðar við störf skiptastjóra en komi til þess er lögmanni ekki úthlutað búi í þrjú ár.
Alls voru 892 (736) þrotabú opin í ársbyrjun 2026 og höfðu 288 (230) þeirra verið undir skiptum í meira en eitt ár.
Stærri búin
Þrotabúum er skipt í tvo flokka; bú einstaklinga og minni lögaðila og svo stærri bú lögaðila sem hafa verið með fleiri en fimm starfsmenn á launaskrá og yfir 150 milljóna króna ársveltu. Alls komu 5 (4) þrotabú stærri lögaðila til úthlutunar á árinu 2025 og voru sex lögmenn skipaðir skiptastjórar yfir þeim, fimm karlar og ein kona.
Í lokin
Gagnsærri og réttlátari úthlutun þrotabúa er mikið fagnaðarefni og eykur traust og skilvirkni réttarkerfisins. Héraðsdómstólarnir eru betur upplýstir við val á skiptastjóra og hafa aðgang að ítarlegri upplýsingum um menntun þeirra og reynslu. Þess má svo geta að í mars síðastliðnum voru reglur dómstólasýslunnar um fjárhæð skiptatrygginga og skipun skiptastjóra og umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum uppfærðar með reglum nr. 5/2026. Við þá endurskoðun var bætt við nýrri 4. gr. þar sem mælt er fyrir um það að einstaklingur sé fjarlægður af skránni ef það kemur í ljós að hann uppfyllir ekki skilyrði til að hljóta skipun sem skiptastjóri.
Höfundur: Eyrún Ingadóttir, aðstoðarritsjóri