Þegar fyrirtæki eru stofnuð er eitt af fyrstu verkum eigenda að skrá lén fyrir starfsemina. Oft er nafn fyrirtækis beinlínis ákveðið út frá því hvaða lén eru laus og jafnvel er kenninafn fyrirtækisins það sama og heiti lénsins. Einnig kemur reglulega fyrir að fyrirtæki skrá firmaheitið hjá Fyrirtækjaskrá, áður en kannað er hvort samsvarandi lén sé laust til skráningar. Þá verða eigendur oft fyrir vonbrigðum.
Algengt er að fólk telji lén vera laust þar sem engin vefsíða birtist þegar lénaheitið er slegið inn í vafra. Það segir þó ekki alla söguna. Lénið getur verið skráð á annan aðila, einstakling eða fyrirtæki, þótt engin virk vefsíða sé tengd við það. Í mörgum tilvikum er lénið aðeins notað fyrir tölvupóst, eða jafnvel eingöngu skráð í rétthafaskrá ISNIC án frekari notkunar.
Verðmæti léna
Lén gegna lykilhlutverki í rekstri fyrirtækja. Þau eru heimilisföng fyrirtækja á internetinu og helsta leið viðskiptavina til að finna starfsemina á netinu. Með tímanum geta lén byggt upp verulegt orðspor og viðskiptavild og orðið ein verðmætasta eign fyrirtækisins. Lén ganga reglulega kaupum og sölu, stundum fyrir háar fjárhæðir og dæmi eru um lén sem hafa selst fyrir tugmilljónir króna. Með léninu fylgir oft viðskiptavild sem hefur byggst upp í gegnum áralanga markaðssetningu, þjónustu og hlotið mikið traust viðskiptavina.
Skiptastjórar og lén þrotabúa
Þegar fyrirtæki verða gjaldþrota eru lén þess í flestum tilvikum í virkri notkun og skráð á félagið. Þegar þannig háttar um lén eru þau oft tengd við vefsíður og tölvupóst, sem viðskiptavinir og starfsfólk nota daglega – jafnvel eftir að fyrirtækið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Þegar skiptastjóri er skipaður er mikilvægt að hann hafi hraðar hendur og kanni strax hvort einhver lén séu skráð á kennitölu félagsins og breyti eftir atvikum skráningu þeirra. Þetta ætti að vera meðal fyrstu verkefna skiptastjóra, rétt eins og að tryggja aðgang að bankareikningum, bókhaldi og öðrum eignum félagsins.
Auðvelt er að skoða á isnic.is á hvern lén eru skráð.
Aðgangsstýring og öryggi
Ef lén eru skráð á gjaldþrota félag er mikil-vægt að skiptastjóri breyti tafarlaust aðgangs-upplýsingum tengiliðs félagsins hjá ISNIC. Gleymist það, geta fyrri eigendur, eða tengdir aðilar gjaldþrota félagsins, mögulega skráð sig inn á auðkenni félagsins og skipt um rétthafa.
Með þeim hætti getur aðilinn „stolið“ léninu af þrotabúinu og haldið starfsemi gangandi undir nýrri kennitölu, á sama léni og viðskiptavinir félagsins verða einskis varir.
Skiptastjóri getur komið í veg fyrir þetta með því að fylla út sérstakt eyðublað á vef ISNIC og breytt skráðu netfangi og farsímanúmeri tengiliðsins. Að því loknu getur hann skráð sig inn á aðganginn, breytt lykilorði og tekið yfir umsýslu lénsins. Ef að skiptastjóri hefur fengið prókúru, getur hann skráð sig inn með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappi og fengið aðgang að auðkenni félagsins undir Mínir tengiliðir.
Í flestum tilvikum þarf einnig að breyta rétt-hafa og greiðanda lénsins svo hægt sé að gefa út reikning fyrir næsta árgjaldi og halda léninu virku á meðan unnið er með eignir búsins.
Verðmæti sem vilja gleymast
Þrátt fyrir að flestir geri sér grein fyrir mikilvægi og verðmæti léna gleymast þau oft í skiptum þrotabús. Ástæðan er meðal annars sú að lén eru yfirleitt ekki færð sérstaklega sem eign í bókhaldi. Þau eru ódýr við skráningu og geta auðveldlega fallið á milli stafs og hurðar við uppgjör þrotabúa.
Alltof algengt er að lén gleymist og að skiptum þrotabús ljúki og að kennitala félagsins verði afskráð hjá Fyrirtækjaskrá. Þá getur ISNIC ekki gefið út reikning fyrir árgjaldi lénsins sem leiðir til þess að lénið lokar daginn eftir eindaga vegna vangreiðslu. Þegar lén hafa verið lokuð samfellt í 30 daga eyðast þau og verða laus til skráningar á ný fyrir hvern sem er. Í mörgum tilfellum eru lén nýskráð sama dag og þau losna, oftar en ekki af fyrrverandi eiganda gjaldþrota félags, eða lénakaupmanni, sem getur verið staddur hvar sem er í heiminum.
Í sumum tilfellum eru lén verðmætasta eign fyrirtækisins.
Í sumum tilfellum eru lén verðmætasta eign fyrirtækisins og jafnframt sú sem auðveldast er að selja. Sérstaklega á þetta við þegar um gott og eftirsótt lén er að ræða. Dæmi eru um þekkt innlend lén sem hafa tapast, lén sem hæglega hefði verið hægt að koma í verð sem losna og eru endurskráð fyrir eitt árgjald .is léns.
ISNIC hvetur skiptastjóra til að huga að lénum þrotabúa áður en verðmæti tapast.
Höfundur: Þór Jensen, framkvæmdastjóri Internets á Íslandi hf. (ISNIC)