Það kemur fyrir að lögmenn sem sinna skiptastjórn þrotabúa fái í hendurnar bú félags sem var í fullum rekstri þegar úrskurður um gjaldþrotaskipti var kveðinn upp. Skiptastjóri stendur þá frammi fyrir ákvörðun um hvort stöðva eigi atvinnureksturinn eða halda honum gangandi. Lög um gjaldþrotaskipti bjóða upp á hvort tveggja.
Ný staða skapast við gjaldþrotaskipti
Þegar bú félags er tekið til gjaldþrotaskipta er oft litið svo á að fullreynt sé að halda áfram rekstri þess. Undanfari gjaldþrotaskipta getur m.a. verið fólginn í greiðslustöðvun eða nauðasamningum án þess að viðhlítandi árangur hafi náðst. Öll slík skref eru jákvæð og best er ef gripið er inn í rekstrarvandræði með snemmtækri íhlutun og endurskipulagningu. Þeir kostir sem fjallað er um í nýlegri tilskipun Evrópusambandsins nr. 2019/1023, um forvirkar aðgerðir í þágu endurskipulagningar, eftirgjafar skulda og til að auka skilvirkni slíkrar málsmeðferðar innan ESB, geta ýtt undir að gripið sé nægilega snemma inn í og er því jákvætt að skoða þá kosti til hlítar. Um efni tilskipunarinnar vísast til greinar Stefáns Más Stefánssonar, prófessors emeritus, og Valgerðar Sólness prófessors, í þessu blaði.
Við gjaldþrotaskipti skapast hins vegar ný staða. Hlutverk skiptastjóra er að hámarka verðmæti eigna búsins og koma þeim skjótt í verð með það að markmiði að greiða sem mest upp í kröfur kröfuhafa. Skiptastjóri starfar í þágu allra kröfuhafa og skal vera óháður stjórnarmönnum. Við tilteknar aðstæður getur það verið hagur kröfuhafa að taka áhættu af áframhaldandi rekstri með það að markmiði að hámarka verðmæti hans við sölu, og jafnvel flýta því ferli. Ekki þarf að hafa mörg orð um það hve þjóðhagslega hagkvæmt það getur verið að viðhalda störfum, hugverkum, samkeppni á markaði og öðru því sem fylgir atvinnurekstri. Hér skal þó lögð áhersla á að ávallt ber að leitast við að selja eignir eins fljótt og auðið er og því er ekki gert ráð fyrir rekstri til langs tíma innan þrotabús.
Sé tekin ákvörðun um áframhaldandi atvinnurekstur getur hann verði fólginn í að viðhalda einungis rekstri arðbærustu rekstrareininga en stöðva annan rekstur og selja. Skiptastjóri getur fengið nýjan sérhæfðan aðila að rekstrinum og tekið ákvörðun um að ráða aðeins hluta starfsfólks áfram og nýta hluta af leiguhúsnæði félags, sé það til staðar.
Upplýsingaöflun og samstarf
Til að taka upplýsta ákvörðun um áframhaldandi atvinnurekstur þyrfti skiptastjóri með skjótum hætti að afla upplýsinga um hvað felst í slíkum rekstri, um fastan og breytilegan kostnað og áætlaðar tekjur og taka mið af þeirri óvissu sem áframhaldandi rekstur gjaldþrota félags kann að hafa í för með sér. Sjaldnast á hið gjaldþrota félag handbært fé til að tryggja rekstrartengdar greiðslur. Þá má ætla að undanfari gjaldþrots hafi verið viðvarandi hallarekstur og því er ekki sjálfgefið að tekjur af áframhaldandi rekstri komi til með að standa undir kostnaði af honum. Það er þó ekki útilokað enda hvíla eldri skuldir hjá þrotabúinu og eru ekki hluti af mánaðarlegri greiðslubyrði ef atvinnurekstri er haldið áfram. Auk þess er, sem fyrr segir, unnt að taka ákvörðun um að reka einungis áfram ábatasama hluta rekstursins. Allt þetta þarf að vega inn í ákvörðunina og hvort áhættan af rekstrinum sé ásættanleg.
Segja má nauðsynlegt að ákvörðun um áframhaldandi atvinnurekstur þrotabús sé tekin að höfðu samráði og í samvinnu við stærstu kröfuhafa þess. Aðkoma kröfuhafa er yfirleitt nauðsynleg í formi beins fjárframlags sem gert er ráð fyrir að verði endurgreitt nema reksturinn eða eignir hins gjaldþrota félags reynist ekki standa undir því. Það getur líka verið í formi ábyrgðar sem yrði þá gengið að ef rekstur/eignir standa ekki undir kostnaði af rekstrinum. Skiptastjóri getur undirgengist slíka samninga fyrir hönd þrotabúsins og njóta kröfur á grundvelli slíkra samninga forgangsréttar í þrotabúinu (búskröfur).
Gott samstarf við fyrrum fyrirsvarsmenn félags getur auðveldað þessa vinnu mjög. Stórir kröfuhafar geta jafnframt búið yfir mikilvægum upplýsingum um atvinnurekstur þrotabús, ekki síst viðskiptabankar viðkomandi félags. Þá á skiptastjóri að geta nálgast allar upplýsingar um félagið með aðgangi að heimabanka, bókhaldi o.fl.
Hluthafar geta einnig séð hag af beinni aðkomu að því að tryggja áframhaldandi atvinnurekstur þrotabús. Rétt er að undirstrika að þrátt fyrir slíka aðkomu er skiptastjóri óháður hluthöfunum og starfar í þágu allra kröfuhafa þrotabúsins. Gjaldþrotaskipti eru enda sameiginleg fullnustugerð kröfuhafa og hluthafar geta einungis fengið félagið aftur til sín ef kröfuhafar afturkalla kröfur sínar eða þær eru greiddar að fullu.
Undirrituð hefur nýlega reynslu af því að hluthafar gengust í ábyrgð fyrir atvinnurekstri þrotabús og kostnaði af skiptum (búskröfum) en nokkuð sérstakar aðstæður voru þar uppi. Hluthafar töldu möguleika á því að ná að endurfjármagna félagið og gera upp kröfur. Við töku ákvörðunar um áframhaldandi rekstur fór greining fram á áætluðum mánaðarlegum tekjum og gjöldum, miðað við hefðbundinn rekstur mánuðina og árin á undan með fulltingi framkvæmdastjóra. Leitað var afstöðu stærstu kröfuhafa til áframhaldandi reksturs. Gerðir voru tímabundnir leigusamningar og ráðningarsamningar við hluta starfsfólks og staðan endurmetin um hver mánaðamót. Fyrrum framkvæmdastjóri hélt áfram störfum fyrir félagið. Sala á rekstrinum var undirbúin en að endingu náðu hluthafar að endurfjármagna félagið, semja við kröfuhafa um afturköllun krafna og undirrituð afhenti hluthöfum þá félagið að nýju. Fullyrða má að ef reksturinn hefði verið stöðvaður í þessu tilviki hefðu möguleikar hluthafa til að endurheimta félagið dvínað verulega og kröfuhafar hefðu fengið mun minna upp í kröfur sínar og jafnvel ekkert en ljóst var að upplausnarvirði félagsins var lítið. Kostnaður við sölu einstakra eigna hefði líklega verið meiri en verðmæti þeirra.
Umræða óskast
Segja má sjaldgæft að gjaldþrota félag haldi atvinnurekstri áfram. Ástæðan er líklega fólgin í þeirri áhættu sem því er meðfylgjandi fyrir kröfuhafa og eftir atvikum skiptastjóra og þeirri tímapressu sem er til staðar við þá ákvörðunartöku en hana þarf að taka á allra fyrstu dögum gjaldþrotaskiptanna. Þá kann að skorta á samráð milli skiptastjóra og kröfuhafa.
Þó áhætta sé til staðar getur ávinningur sömuleiðis verið verulegur hjá kröfuhöfum eins og áður hefur verið lýst. Í mörgum tilvikum er upplausnarvirði félags lítið eða ekkert og stöðvun rekstrar rýrir ávallt verðmæti hans og getur gert það þungt og kostnaðarsamt að selja einstaka eignir. Við það tapast störf, a.m.k. tímabundið, og önnur verðmæti.
Meiri umræða um aðkomu kröfuhafa eða hluthafa að áframhaldandi rekstri væri jákvæð.
Höfundur: Unnur Lilja Hermannsdóttir, lögmaður hjá Landslögum