Í alþjóðlegum kaupum og sölu fyrirtækja hafa svokallaðar Warranty & Indemnitytryggingar, W&I-tryggingar, fest sig í sessi sem leið til að einfalda samningsgerð og takmarka fjárhagslega áhættu aðila. Lítið hefur farið fyrir slíkum tryggingum hér á landi og hér verður fjallað um eðli slíkra trygginga, helstu takmarkanir og hvort þær eigi erindi á íslenskan markað.

Í kaupum og sölu fyrirtækja fer oftast mestur tími samningaviðræðna, að undanskildum umræðum um kaupverð, í að semja um ábyrgðaryfirlýsingar seljanda, skaðleysisákvæði og vanefndarúrræði.

W&I-tryggingar hafa verið sérstaklega áberandi í viðskiptum þar sem framtaks- og vísisjóðir eiga í hlut. Slíkir aðilar hafa oft ríka hagsmuni af því að fá kaupverðið greitt út við lok viðskipta án þess að hluta kaupverðs sé haldið eftir eða greitt inn á sérstaka vörslureikninga. W&I-tryggingar eru orðnar algengar í stærri alþjóðlegum viðskiptum með fyrirtæki, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu, og fara vaxandi. Í nýlegri rannsókn American Bar Association um helstu skilmála í kaupum og sölu fyrirtækja kemur fram að slíkar tryggingar komu við sögu í 63% viðskipta.

Hvað eru W&I-tryggingar?

Í hefðbundnum kaupsamningi um fyrirtæki veitir seljandi kaupanda ýmsar ábyrgðar- eða skaðleysisyfirlýsingar um félagið sem verið er að selja. Slíkar yfirlýsingar geta meðal annars varðað ársreikninga, skattamál, samninga, hugverkaréttindi, starfsfólk, leyfismál o.s.frv. Komi síðar í ljós að yfirlýsingarnar voru rangar getur kaupandi átt rétt á skaðabótum eða öðrum vanefndaúrræðum samkvæmt samningnum.

W&I-tryggingum ætlað að vernda aðila í viðskiptum með fyrirtæki.

W&I-tryggingum er ætlað að vernda aðila í viðskiptum með fyrirtæki gegn fjárhagslegu tjóni sem kann að leiða af röngum eða ófullnægjandi yfirlýsingum seljanda. Í kaupandatryggingum er kaupandi sjálfur vátryggður og getur þá beint kröfum sínum að vátryggjanda ef tjón verður vegna brota á ábyrgðaryfirlýsingum seljanda. Í seljandatryggingum  er seljandi vátryggður fyrir kröfum sem kaupandi kann að eiga á hendur honum vegna brota á ábyrgðaryfirlýsingum í kaupsamningi að því marki sem tryggingin tekur til. Kaupandatryggingar eru þó  mun algengari í alþjóðlegum kaupum og sölu fyrirtækja. Eðli trygginganna er því ekki að tryggja rekstur félagsins sjálfs, heldur áhættu sem tengist upplýsingagjöf og ábyrgðum í tengslum við viðskiptin.

Hvað fellur utan tryggingaverndar?

Þótt W&I-tryggingar séu algengar í stærri kaupum og sölu fyrirtækja eru þær ekki allsherjarlausn við allri þeirri áhættu sem kann að fylgja slíkum viðskiptum. Vátryggingaverndin tekur almennt til óþekktra atriða sem leiða til brota á ábyrgðaryfirlýsingum seljanda, það er atriða sem kaupandi vissi ekki um á þeim tíma sem tryggingin miðast við, svo sem við undirritun og/eða uppgjör viðskiptanna. Þekktar áhættur, þar á meðal atriði sem komu fram við áreiðanleikakönnun eða voru sérstaklega upplýst af hálfu seljanda, eru því að jafnaði undanskildar tryggingavernd.

Einnig eru ákveðnar tegundir áhættu gjarnan undanskildar tryggingavernd eða háðar sérstökum skilyrðum. Þar má meðal annars nefna verðleiðréttingar eftir lok viðskipta, svokölluð leakageákvæði, stjórnvaldssektir, skattamál, umhverfisáhættu og lífeyrisskuldbindingar. Þá nær tryggingavernd almennt ekki til svika eða ásetningsbrota hins tryggða. Í sumum tilvikum er jafnframt unnt að nýta svokallaða „tilbúna“ W&I-tryggingu (e. synthetic W&I insurance) þar sem tilteknar ábyrgðaryfirlýsingar eru tryggðar á grundvelli tryggingaskilmálanna sjálfra, þótt seljandi hafi ekki veitt samsvarandi ábyrgðir í kaupsamningi. Slík útfærsla getur komið til álita fyrir kaupanda þegar seljandi er ófús eða ófær um að veita tilteknar ábyrgðir með beinum hætti.

Algengt er að W&I-tryggingar séu háðar sjálfsábyrgð eða eigin áhættu, sem getur hvílt á kaupanda eða seljanda eða verið skipt milli aðila, allt eftir uppbyggingu viðskiptanna og hvernig um semst á milli aðila. Þá gilda yfirleitt einnig ákveðin tímamörk um það hversu lengi unnt er að gera kröfur vegna brota á ábyrgðaryfirlýsingum, auk þess sem tryggingin er háð tiltekinni hámarksfjárhæð. Algengt er að iðgjald nemi um 0,5–2% af tryggingarfjárhæðinni þótt það geti verið breytilegt eftir umfangi viðskiptanna, starfsemi hins selda, áhættumati vátryggjanda og markaðsaðstæðum hverju sinni.

Algengt að iðgjald nemi um 0,5–2%.

Hagnýtt gildi í kaupum og sölu fyrirtækja

Ein helsta ástæða útbreiðslu W&I-trygginga í alþjóðlegum kaupum og sölu fyrirtækja er að þær geta einfaldað samningsgerð og skýrt hvernig dreifa skuli áhættu milli aðila. Seljandi getur því fengið stærri eða allan hluta  kaupverðsins greitt út strax við lok viðskipta í stað þess að fjármunum sé haldið eftir, s.s. með skiptingu kaupverðsgreiðslna eða með greiðslum á vörslureikninga um tiltekinn tíma. Þetta getur verið sérstaklega mikilvægt fyrir framtaks- eða vísisjóði sem stefna að því að selja eignir sínar og skila fjármunum til fjárfesta sinna eins hratt og unnt er.

Þetta getur líka verið gagnlegt í tilvikum þar sem margir seljendur standa að baki sölu félags. Fullnusta krafna gagnvart stórum og dreifðum hópi seljenda getur reynst bæði flókin og kostnaðarsöm. Fyrir kaupanda getur því verið mun einfaldara að beina mögulegum kröfum að einum aðila, þ.e. vátryggjanda, fremur en að þurfa að sækja kröfur á hendur hverjum seljanda fyrir sig. Um leið geta tryggingarnar auðveldað samningaviðræður og gert aðilum kleift að ná saman um ábyrgðaryfirlýsingar og ábyrgðarfyrirkomulag sem seljandi myndi ella síður sætta sig við.

Eiga W&I-tryggingar erindi á Íslandi?

Á Íslandi hafa W&I-tryggingar enn ekki náð fótfestu en á því eru þó nokkrar einfaldar skýringar. Markaðurinn er hlutfallslega lítill, viðskipti eru oft undir þeim þröskuldum sem erlendir vátryggjendur telja arðbæra og getur því verið erfitt að fá ásættanleg tilboð í slíkar tryggingar. Kostnaður við slíkar tryggingar hefur því gjarnan verið hlutfallslega hár með hliðsjón af verðmæti viðskiptanna. Þá hafa aðilar fremur reitt sig á hefðbundin úrræði á borð við greiðslur inn á vörslureikninga, skiptingu á greiðslum kaupverðs, varðveislu hluta kaupverðs hjá kaupanda um tiltekinn tíma eða sérstakar samningsbundnar ábyrgðir, til að tryggja hagsmuni sína. Þá kann smæð markaðarins einnig að skýra þetta enda geta náin tengsl og tillit til orðspors haft umtalsverð aðhaldsáhrif.

Geta aukið samkeppnishæfni kaupanda í söluferlum.

Ýmis rök eru fyrir því að notkun W&I-trygginga geti aukist hér á næstu árum. Viðskipti með fyrirtæki tengjast í auknum mæli alþjóðlegum mörkuðum og erlendir fjárfestar koma reglulega að íslenskum viðskiptum. W&I-tryggingar hafa einkum komið við sögu í viðskiptum þar sem erlendur aðili var ýmist kaupandi eða seljandi. Þær geta aukið samkeppnishæfni kaupanda í söluferlum, þar sem margir keppa um sama félagið, og dregið úr þörf fyrir víðtæka ábyrgð seljanda. Þá geta tryggingarnar reynst sérstaklega gagnlegar í viðskiptum þar sem seljendur vilja takmarka ábyrgð sína eftir sölu eða þar sem hefðbundnar ábyrgðaryfirlýsingar fást ekki með venjulegum hætti. Þetta getur meðal annars átt við þegar seljandi er sjóður sem stendur frammi fyrir því að líftíma hans fari að ljúka.

Á hinn bóginn verður ekki litið fram hjá því að W&I-tryggingar geta verið kostnaðarsamar og krefjast yfirleitt töluverðrar undirbúningsvinnu. Gæði og umfang áreiðanleikakönnunar skipta þar miklu máli enda gera vátryggjendur almennt ríkar kröfur um upplýsingagjöf áður en trygging er veitt. Vátryggjendur leggja jafnframt sjálfstætt mat á fyrirliggjandi gögn og geta í því skyni notið liðsinnis eigin ráðgjafa. Kostnaður vegna slíkrar yfirferðar getur þá bæst við iðgjaldið sem vátryggingartaki greiðir. Af þeim sökum henta slíkar tryggingar líklega síður í smærri innlendum viðskiptum.

Fyrir marga felst ávinningurinn í því að auðvelda samningagerð.

Að lokum

W&I-tryggingar hafa á tiltölulega skömmum tíma orðið mikilvægur hluti alþjóðlegra fyrirtækjaviðskipta. Þær breyta því hvernig áhættu er dreift milli kaupanda, seljanda og þriðja aðila, þ.e. vátryggjanda. Fyrir marga samningsaðila felst helsti ávinningurinn ekki aðeins í sjálfri tryggingaverndinni heldur einnig í því að auðvelda samningagerð, stytta samningaviðræður og einfalda uppgjör viðskipta.

Þótt íslenski markaðurinn sé enn tiltölulega lítill eru teikn á lofti um að sambærileg þróun geti átt sér stað hér á landi, sérstaklega eftir því sem þátttaka erlendra aðila í viðskiptum með fyrirtæki hér á landi eykst. Þá er fyrirséð að með mikilli fjölgun framtaks- og vísisjóða hér á landi muni þetta koma til skoðunar þegar þeir þurfa að selja eignir og skila fjármunum til fjárfesta. Í slíkum aðstæðum kann að vera erfitt fyrir aðila að ná saman um ásættanlegar ábyrgðaryfirlýsingar og ábyrgðartímabil fyrir kaupanda og seljanda. Fyrir íslenska lögmenn kann því að vera tímabært að kynna sér nánar hvernig slíkar tryggingar geta nýst sem liður í samningsgerð og áhættuskiptingu í kaupum og sölu fyrirtækja.

Höfundur: Elvar Jónsson, lögfræðingur, verkefnastjóri hjá LOGOS