Það þarf ekki að glugga í mörg Lögmannablöð til að sjá að málskostnaðarákvarðanir dómstóla og þóknanir til handa skipuðum verjendum og talsmönnum eru sígilt þrætuepli. Hefur lögmönnum oft þótt helst til naumt skammtað og ekki að ófyrirsynju.

Lögmannafélagi Íslands bárust nýlega ábendingar frá félagsmönnum vegna ákvarðana Landsréttar um þóknun til handa skipuðum verjendum og talsmönnum í dómum og úrskurðum sem gengið hafa á stuttu tímabili. Annars vegar virðist sem rétturinn hafi, í reynd, í tveimur málum talið tilefni til að lækka tildæmda og þegar greidda þóknun verjenda vegna flutnings máls í héraði án þess að ákæruvaldið hafi gert athugasemdir við ákvarðaðan málskostnað. Hins vegar var horfið frá venjubundinni þóknun vegna kæra úrskurða í málum sem rekin eru á grundvelli lögræðislaga nr. 71/1997. Hvort tveggja kemur á óvart. Líkt og fram kemur í blaðinu hefur félagið sent formlegt erindi á Landsrétt og óskað eftir fundi með forseta réttarins vegna þessa ásamt því að ræða málskostnaðarákvarðanir og ákvarðanir um þóknanir til handa verjendum, réttargæslumönnum og talsmönnum í víðara samhengi.

Félagið hefur einnig nýverið sent ítrekun á fyrri erindum til dómsmálaráðuneytisins og bent á að viðmiðunarþóknun samkvæmt reglum nr. 965/2015 um þóknun og útlagðan kostnað skipaðra lögráðamanna hefur staðið óbreytt í rúm 10 ár. Úr þessu verður augljóslega að bæta.

Félagið hefur jafnframt farið þess á leit við dómsmálaráðherra að hann beiti sér fyrir breytingum á gildandi reglum um tekjuviðmið umsækjenda um gjafsókn, enda ljóst að gildandi viðmið endurspegla ekki þann veruleika sem blasir við öryrkjum og tekjulágum, meðal annars vegna hækkandi húsnæðis- og framfærslukostnaðar. Framangreint er sjálfsagður liður í að tryggja aðgang að dómstólum í samræmi við ákvæði 70. gr. stjórnarskrár og 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Til meðferðar nú fyrir dómi eru kröfur Skattsins um afhendingu skráa um ótiltekna viðskiptavini lögmannsstofa sem liður í almennu skatteftirliti. Hefur í því sambandi verið vísað til 4. mgr. 94. gr. tekjuskattslaga nr. 90/2003. Lögmannafélagið hafði áður sent Skattinum erindi þar sem bent var meðal annars á að þó kveðið sé á um í 5. mgr. 94. gr. laga nr. 90/2003 að ákvæði annarra laga um þagnarskyldu víki fyrir ákvæðum greinarinnar, telji félagið að við skýringu ákvæðisins verði að gæta að þeirri ríku þagnar- og trúnaðarskyldu sem hvílir á lögmönnum og ákvæðið verði ekki túlkað í tómarúmi gagnvart þeim skyldum. Félagið fylgist grannt með framvindu mála.

Eins og vill stundum verða gustar þannig um ýmis brýn en sígild málefni félagsmanna. Svo verður vafalaust áfram eins og sagan kennir okkur. Að lokum óska ég fyrir hönd stjórnar félagsins félagsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Stefán A. Svensson, formaður LMFÍ