Lögmenn þurfa heimild í lögum til að geta farið fram á endurskoðun málskostnaðar- eða þóknunarákvarðana dómara án þess að efnisúrlausn dóms sé samhliða endurskoðuð.
Allt frá hausti 2023 hefur stjórn LMFÍ farið fram á það við dómsmálaráðherra að ráðuneytið, eða eftir atvikum réttarfarsnefnd, tækju til meðferðar tillögur félagsins um breytingar á lögum, nr. 91/1991 um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008, til að koma inn ákvæðum um kæruheimildir lögmanna vegna ákvarðana dómstóla um málskostnað.
Um miðjan nóvember síðastliðinn var enn á ný farið þess á leit við ráðherra að málið yrði tekið til meðferðar.
Eyrún Ingadóttir