Í byrjun nóvember fóru tíu konur á vegum Félags kvenna í lögmennsku í heimsókn í Landsrétt til að kynna sér starfsemina og að því loknu á Brasserie Kársness. Hervör Þorvaldsdóttir forseti Landsréttar tók á móti hópnum ásamt Ernu Sigríði Sigurðardóttur skrifstofustjóra og var kynningin bæði fróðleg og skemmtileg.
FKL er 21 árs félagsskapur kvenna í LMFÍ sem hefur þann tilgang að efla samstarf milli kvenna og styrkja stöðu þeirra í lögmannastéttinni. Formaður Félags kvenna í lögmennsku er Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður hjá EVA lögmönnum.