Á síðasta vetrardegi útskrifuðst 19 lögfræðingar af námskeiði til öflunar málflutningsréttinda en líkt og áður hafði Lögmannafélagið umsjón með framkvæmdinni. Alls þreyttu 38 lögfræðingar prófraunina að þessu sinni. Þar af var 21 nýskráður en 17 þátttakendur voru af fyrri námskeiðum sem áttu eftir að ljúka einstökum prófum.
Lögmannsefnin hafa nú setið rúmlega 100 kennslustunda námskeið þar sem kennt var einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnusturéttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Þá var farið yfir réttindi og skyldur lögmanna; siðareglur, þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutning, samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála.
Það er þó ekki svo að lögmannsefnin geti nú flutt mál þar með því þau eiga eftir að þreyta verklega prófraun sem felst í því að veita sjálfstætt starfandi lögmanni aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi, þ.á m. að afla sönnunargagna, undirbúa málflutningsræðu og aðra þætti aðalmeðferðar máls.
Lögmannafélag Íslands bauð verðandi félögum í móttöku að lokinni útskrift og óskar þeim innilega til hamingju með áfangann.
Eyrún Ingadóttir