Komið að kaflaskilum

Ég er lögmaður og hef starfað sem yfirlögfræðingur Íslandsbanka frá árinu 2008. Ég hef starfað hjá eða fyrir Íslandsbanka og forvera hans, með stuttum hléum, frá árinu 1988. Dagarnir líða hratt en vikurnar eru oft í föstum skorðum og varðaðar reglulegum fundum stjórna og nefnda sem ætlað er að fjalla um allt sem viðkemur rekstri bankans, lánveitingum, stefnumótun, viðhaldi regluverks, samningagerð, samskiptum við viðskiptavini, lánveitendur, eftirlitsaðila og þvíumlíkt. Oft þarf að taka ákvarðanir hratt og vinna langan vinnudag og þá er mikilvægt að halda hæfilegu jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Konan mín er Írunn Ketilsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Century Aluminium. Við hjónin eigum fjögur uppkomin börn,  fimm barnabörn og það sjötta á leiðinni. Við reynum að nýta tímann utan vinnu til samvista við fjölskylduna, helst í rólegheitum í sumarhúsinu okkar í Landsveitinni nú eða að æfa og spila golf. Hér er innsýn í eina dæmigerða viku á liðnu vori.

Mánudagur

Ég mætti í vinnuna um klukkan hálf níu og byrjaði daginn á að fara yfir tölvupósta og verkefnalistann eins og ég skildi við hann á föstudaginn. Ég átti fund með einum af stjórnendum lögfræðisviðsins þar sem við fórum yfir helstu verkefni hans.

Þá tók við undirbúningur fyrir fund í áhættustefnunefnd bankans sem var haldinn eftir hádegið. Nefndin fundar ekki sjaldnar en mánaðarlega og henni er meðal annars ætlað að móta og fylgja eftir áhættustefnu bankans, setja áhættum mörk og tryggja að áhættusnið bankans sé innan áhættuvilja stjórnar, auk þess að rýna og staðfesta breytingar á stefnuskjölum sem bankanum ber að setja um starfsemi sína, áður en þær fara til undirnefnda stjórnar og svo stjórnarinnar sjálfrar til afgreiðslu.

Þá tók við tími hjá golfkennara, sem hefur haft okkur hjónin til meðferðar. Við hittum hann vikulega í golfhermi í vetur og nutum hans leiðsagnar. Golfið er stór hluti af lífi okkar hjóna, við spilum mikið á sumrin og förum reglulega í golfferðir með vinum. Það er fátt sem hreinsar hugann jafn vel og að spila golf. Þar fer allt saman, útivera, hreyfing og góður félagsskapur.

Þriðjudagur

Ég vaknaði snemma en konan mín var farin í sína vinnu fyrir klukkan sjö. Ég hafði húsið fyrir mig og tók fram gítarinn og spilaði og söng fyrir sjálfan mig í svona þrjú korter. Ég hef alltaf haft gaman af tónlist og að læra lög og texta. Ég verð alltaf léttari í lund þegar ég er búinn að taka smá á háu tónunum.

Vinnudagurinn hófst svo kl. 9 á fundi í framkvæmdastjórn bankans. Ég hef verið ritari framkvæmdastjórnar og stjórnar bankans frá árinu 2008 og það hefur gefið mér einstaka innsýn í þróun íslensks atvinnulífs og fjármálamarkaðar. Framkvæmdastjórnin ræddi m.a. um nýjar auglýsingar bankans, farið var yfir stöðu lykilverkefna og rætt um áskoranir í rekstrarumhverfi byggingaraðila og samdrátt í veitingu nýrra húsnæðislána. Þá var farið yfir skýrslu um innleiðingu gervigreindar innan bankans. Loks var mánaðaruppgjör bankans fyrir febrúarmánuð samþykkt.

Um kvöldið borðuðum við hjónin á veitingahúsi. Eftir að heim var komið tók við undirbúningur fyrir fund í yfirlánanefnd bankans. Í „inboxinu“ biðu rúmlega 200 blaðsíður af fundargögnum sem ég þurfti að fara yfir fyrir fundinn.

Miðvikudagur

Miðvikudagurinn hófst á fundi í yfirlánanefnd bankans. Ég er formaður nefndarinnar sem heldur reglulega fundi einu sinni í viku, oftast í ríflega tvær klukkustundir. Á fundunum fara viðskipta- og lánastjórar yfir tillögur að lánveitingum og gera grein fyrir rekstri viðskiptavina sem í hlut eiga. Hlutverk formannsins er, auk þess að stýra fundum, að tryggja að umræður séu markvissar og að nefndin nái að fara vel yfir helstu álitaefnin áður en ákvörðun er tekin. Stundum þarf að leiða saman ólík sjónarmið og finna góða lausn.

Eftir hádegið fór ég á ársfund Samtaka fjármálafyrirtækja þar sem flutt voru áhugaverð erindi um þróun fjármálamarkaðarins. Skýrt var frá niðurstöðum nýrrar Gallupkönnunar sem sýndi að traust almennings til fjármálafyrirtækja hefði aukist verulega á liðnum árum.

Um kvöldið hittumst við tveir góðir vinir í golfhermi og fórum síðan saman í kvöldmat í golfskálanum. Þegar heim var komið fundum við hjónin góða þætti á af streymisveitu til að horfa á fyrir svefninn.

Fimmtudagur

Ég byrjaði fimmtudagsmorguninn á fundi með stjórnendum lögfræðisviðs þar sem við fórum yfir stöðuna á skilgreindum lykilverkefnum og ræddum um þau verkefni sem efst voru á baugi. Síðar um morguninn fengum við kynningu á nýrri virkni í því gervigreindartóli við höfum haft í notkun meðal lögfræðinga í bankanum frá liðnu sumri.

Gervigreindartól geta stytt vinnuferla og flýtt verulega fyrir við undirbúning og úrvinnslu þó þau komi engan veginn í stað mannlegs innsæis reyndra lögfræðinga. Mér finnst gervigreindin hafa aukið skilvirkni í mínum störfum verulega.  Ég er einn af þeim sem get verið lengi að byrja að skrifa á autt blað – mér fellur betur að fara yfir og bæta við eitthvað sem þegar er komið á blað. Eftir að ég hef tileinkað mér notkun gervigreindarlausna, þarf ég sjaldnast að byrja með autt blað. Á augnabliki má kalla fram fyrstu drög, hvort sem er að samningum, bréfum, álitsgerðum eða texta í fundargerðir, sem svo má prjóna við.  Fyrir fundum liggja gjarnan glærukynningar, þar sem efnið er sett fram á punktaformi.  Gervigreindin á létt með að snúa slíkum kynningum í lýsandi texta um hvað er fjallað í kynningunni. Þetta flýtir mikið fyrir við ritun funda. Ég tel að næstu ár muni gervigreindarlausnir breyta störfum lögfræðinga meira en við gerum okkur grein fyrir. Tæknilegar framfarir verða sífellt hraðari. Þær verða áreiðanlega aldrei eins hægfara og þær eru í dag.

Í dagslok var kveðjuhóf fyrir samstarfsmann í fjárstýringu bankans, Bill Symington, sem var að fara á eftirlaun eftir áratuga  langt starf við fjármögnun Íslandsbanka og forvera hans.

Um kvöldið horfðum við á útsendingu frá fyrsta deginum í Mastersmótinu í golfi, sem er einn af föstum punktum vorsins hjá mörgum kylfingum.

Föstudagur

Þennan föstudag voru engir fastir fundir og ég náði að fara yfir nokkur verkefni í tölvunni, ljúka við fundargerðir vikunnar, fara yfir tillögur að breytingum á stefnuskjölum og þess háttar. Ég átti samtöl við viðskiptastjóra um úrvinnslu lánamála og fékk kynningu á nýjum tækifærum í lánum.

Eftir lokafrágang verkefna héldum við hjónin í sumarbústaðinn okkar. Á leiðinni stoppuðum við á Strandarvelli á Hellu og spiluðum níu holur í fallegu veðri.

Helgin

Laugardagurinn fór að mestu í húsverk í sveitinni, trjáklippingar og önnur verkefni sem fylgja sumarbústaðalífinu. Seinna um daginn fórum við á Strandarvöll og spiluðum 18 holur. Völlurinn á Hellu er almennt opnaður fyrr en aðrir vellir á landinu og hann er opinn félagsmönnum allt árið um kring, meðan veður og snjóalög leyfa.

Á sunnudeginum var okkur boðið í mat til pabba og mömmu, sem tóku á móti þeim börnum, barnabörnum og barnabarna komust. Um kvöldið horfðum við svo á lokadaginn á Masters, þar sem við fylgdumst með Rory McIlroy tryggja sér græna jakkann annað árið í röð.

Að lokum

Þegar ég lít yfir þann tíma sem ég hef unnið í bankakerfinu rennur upp fyrir mér hve mikið starfsumhverfi lögfræðinga hefur breyst. Mér finnst ég lánsamur að hafa fengið að taka virkan þátt í einkavæðingu FBA á sínum tíma og svo uppbyggingu Íslandsbanka eftir hrun og skráningu hans á markað. Þátttaka í endurskipulagningu á fjárhag íslenskra heimila og fyrirtækja eftir hrun er líka ofarlega í huga. Mér finnst að á heildina litið hafi þetta allt tekist mjög vel. Þótt tíminn eftir 2008 hafi oft verið erfiður var hann mjög gefandi.

Nú er komið að kaflaskilum hjá mér. Í sumar mun ég ljúka störfum í bankanum og halda á ný mið. Verkefnin hafa verið skemmtileg og krefjandi og ég er stoltur af þeim. Það sem stendur þó upp úr eru samskipti við ótal hæfileikaríka samstarfsmenn, innan og utan bankans. Í þeirra hópi eru margir af mínum bestu vinum. Nú taka ný ævintýri við.

Tómas Sigurðsson | yfirlögfræðingur Íslandsbanka